Góða kvöldið allir, langt síðan síðast... Úff, af mér er það helst að frétta að ég er að kafna úr kvefi :( Minn elskulegi kall fór í fjallgöngu yfir Fimmvörðuhálsinn um síðustu helgi og nældi sér í flensu á leiðinni. Ég hef að sjálfsögðu gert skyldu mína alla vikuna og verið að hjúkra honum og að launum uppskar ég mína eigin flensu. Það versta við það er fyrir utan vanlíðanina að ef ég er með flensu þá er krílið með flensu, FYRIRGEFÐU KRÍLI!!!
Annars er það nýjasta af óléttunni það að frétta að núna eru hreyfingar barnsins komnar í spilið. Flestar konur segja að það sé alveg yndislegt og sennilega á mér eftir að fara að finnast það þegar líður á. Akkúrat núna finnst mér þetta samt meira dáldið furðulegt. Maður liggur uppí rúmi og ætlar að fara að sofa og þá allt í einu er eins og það sé verið að pota í mann að innan, dáldið skrýtið. Æi, verð reyndar að viðurkenna að það er soldið notalegt sko, þá veit maður meira af þessu og veit að krílið er í góðu stuði:) Allavega vex það og dafnar og ég er komin með ágætist bumbu. Á fimmtudaginn erum við að fara í 20. vikna sónarinn og þá getum við fengið að vita kyn barnsins. Kallinn minn sagði að sér væri alveg sama svo ég mætti bara ráða þessu, þ.e. hvort við fáum að vita eða ekki. Sökum mjög sterks forvitnisgens sem ég fæddist með þá langar mig alveg hrikalega mikið að fá að vita svo ég hugsa að sú verði raunin. Hvort við segjum öðrum frá því er hins vegar ekki ljóst á þessari stundu ;)
Ætli ég verði víst ekki að nefna það að ég hef elst um heilt ár síðan ég skrifaði síðast. Átti ammæli þann 15. júní. Ég hélt að vísu ekkert upp á það, var einhvern veginn ekkert í stuði. Reyndar voru stelpurnar í saumaklúbbnum mínum samt svo sætar að halda smá upp á það í síðustu viku. Hittumst í Heiðmörkinni og grilluðum puslur og svoleiðis. Ein gaf mér fótanuddkrem sem kemur sér mjög vel á meðgöngunni þar sem ég er nú dáldið aum í fótunum á kvöldin og ein gaf mér djúpnæringarkrem fyrir húðina. Sú þriðja gaf mér svo KASSA af prince polo súkkulaði, ha ha ha... Þær vita svo sannarlega hvað óléttar konur þurfa ;)
Í gærkvöldi fór ég í þrítugs ammæli á Úlfljótsvatni. Hann Örvar minn varð þrítugur þann 21. júní og hélt upp á það í gær. Það var mjög gaman fyrir utan það að kvefið mitt jókst sökum þess hvað ég var mikið úti. Kallinn minn fór með mér (ótrúlegt en satt) og mér fannst voðalega gaman að fá loksins að kynna hann fyrir vinum mínum. Fyrst fannst honum þetta dáldið óþægilegt allt saman en þegar fór að líða á kvöldið og fólk svona aðeins búið að skvetta í sig þá fór þetta að lagast... Ammælið var mjög skemmtilegt, kvöldvaka og svo kom Árni Jhonsen og var með brekkusöng (ammælisbarnið og fjölskyldan hans eru úr Eyjum). Svo var dansað og spjallað og hlegið eins og lög gera ráð fyrir. Margir gistu í tjöldum um nóttina en við ákváðum að fara í bæinn þar sem við vorum bæði hálflasin. Vorum komin heim um hálf fjögur leytið (þurftum auðvitað að stoppa og kaupa okkur pitsu fyrst).
Við pabbi erum bara tvö í kotinu núna þar sem móðir mín stakk okkur af. Hún ákvað að sér myndi þykja meira gaman að eyða sumrinu í Svíþjóð hjá systur minni í 20-30 stiga hita heldur en á Íslandi í rigningu, ótrúlegt alveg... Við vitum ekkert hvernær hún kemur heim en það verður nú fyrir haustið samt, áður en hún byrjar aftur í skólanum. Við höfum það nú samt alveg fínt saman ég og pabbilabbi...
Nú ég er byrjuð í sumarfjarnámi í F.Á. Það gengur ágætlega. Þarf reyndar að skila ritgerð í næstu viku sem ég verð að fara að byrja á.
Jæja, held ég hafi þetta ekki lengra í bili. Heyrumst fljótt, ykkar Hávaðabelgur með kvef og krílið 19v3d :) ¶ 9:01 PM