Takk frábærlega þið sem senduð komment, svo gott að vita að einhver les :) Núna sit ég og horfi á fréttirnar. Þar er verið að sýna frá hesti með gervifót... Er ekkert furðulegt við það???
Jæja, þetta er búinn að vera ágætis dagur hjá mér. Klukkan 11 fór ég á leiklistarnámskeið sem ég er á. Það er Hollenskur leikstjóranemi sem kennir og hann er alveg frábær og allt voða skemmtilegt. Eftir það fór ég með Kristínu vinkonu minni í pulsuvagninn í laugardal og þar fékk ég mér TVÆR franskar pulsur... Ég er nú ekkert sérlega hrifin af pulsum en þessar eru bara alveg ágætar og ég gúffaði þessu niður. Við Kristín ræddum það að fara í "Roadtrip" en svo eiginlega nenntum við því ekki. Ætlum sennilega á morgun í staðinn.
Eftir pulsuátið var tilvonandi móðirin orðin agalega sibbin og fór þess vegna heim að leggja sig. Ég lagðist á dínu út á svalir en þar sem það var ekkert sérlega hlýtt þá vafði ég mig í flísteppi. Þar steinsofnaði ég og vaknaði ekki fyrr en mamma og pabbi komu heim. Þá var ég orðin blá úr kulda svo ég færði mig inn í sófa og hélt áfram að kúra.
Síðastliðinn mánudag fór kallinn minn til útlanda á vinnufund:( Hann kemur aftur heim á þriðjudaginn og okkur (mér og krílinu) hlakkar pínu ponsu til að fá hann aftur. Er eitthvað svo leiðinlegt að hafa hann ekki. Hann hringdi nú í mig áðan og var þá nýkominn til London (búinn að vera í Frakklandi hingað til). Hann var voða glaður því úrslitaleikurinn í enska bikarnum var áðan og náði Liverpool að vinna þetta. Mikil gleði, vei vei vei... (mín er nú svo rosalegur íþróttaunnandi eins og allir vita, hihihi)
Jamms, annars veit ég ekki hvað ég á að gera af mér í kvöld. Langar ógisslega að gera eitthvað en nenni samt engu. Dáldið erfitt að vera ég :(
Jæja, núna ætla ég að fara að berja mömmu fram í eldhús og skipa henni að elda kvöldmat handa mér. Hún er svo agalega hlýðin þessi kona og lætur svo vel að stjórn;)
Blessó í bili öll sömul, ykkar Hávaðaseggur og krílið 13v2d. ¶ 6:54 PM