Ég hef ákveðið að halda áfram með þetta blogg mitt, allavega eitthvað í bili. Mikið sem ég held að það ætti að gleðja margt hjartað sem hefur verið í öngum sínum vegna skrifstíflu minnar síðasta árið... Jæja, fyrir þá sem að ekki vita (sem eru ekki margir) þá eru hagir mínir eitthvað á þessa leið um þessar mundir. Ég bý enn hjá mömmu og pabba sem er fínt, svona oftast. Ég á eitt stykki kall sem er yfirleitt til vandræða (en mér finnst hann bara svo mikið krútt), og ég er tatatataaaaa, kona eigi einsömul. Já þið skilduð mig rétt, ég er ófrísk. Ég er komin 13 vikur á leið og þess vegna í lagi að segja frá því núna :) Síðan ég uppgötvaði að ég er ófrísk hef ég verið dálítið upptekin af því eins og algengt er þegar konur ganga með sitt fyrsta barn og þess vegna mun þetta blogg sennilega snúast soldið mikið um þetta allt saman. Vona bara að þið hafið eins gaman af því og ég:)
Eins og ég sagði áðan er ég komin 13 vikur á leið. Stærðin á mér er hins vegar ekki í samræmi við það. Er annsi stór orðin og hefur það ýtt undir sögusagnir um það að ég gangi með tvíbura. Er nú reyndar búin að fara í sónar og mæðraskoðun þar sem hjartsláttur barnsins var hlustaður og í bæði skiptin kom bara eitt kríli fram. Held ég myndi sennilega fá nett taugaáfall ef ég gengi með tvö, hihihi, en væri svo sem alveg eftir mér... Hingað til hefur meðgangan gengið ágætlega. Reyndar var ég með svakalega ógleði og það var ömurlegt. Var nánast komin með snöruna um hálsin og á leiðinni að ganga í sjóinn, en ég sá að mér (og læknirinn minn lét mig líka fá töflur sem virkuðu við þessu). Töflurnar breyttu öllu og eftir að ég fékk þær hefur mér liðið alveg með ágætum. Ótrúlegt samt hvað ég er alltaf þreytt, eftir að gera ekki NEITT...
Jæja, hef ekki meira að segja í bili. Endilega sendið komment og svoleiðis svo ég viti að ég sé ekki bara að skrifa fyrir sjálfa mig ;)
Blessó í bili, ykkar einlægur hávaðabelgur og litla krílið 13vikna 1daga... ¶ 8:25 PM