Hvað segið þið í dag? Ég er búin að vera með ógleði í dag sem mér finnst alveg ógeðslega leiðinlegt, en ég er að lagast. Þetta er reyndar alfarið sjálfri mér að kenna því ég hef verið að reyna að minnka skammtinn af ógleðistöflunum mínum og það er bersýnilega ekki tímabært... Ætla ekki að halda áfram með þessa tilraun í bili:)
Jæja, en nóg um það. Stærsta málið í dag er sennilega fréttin um Eyþór Arnalds sem var tekinn fyrir ölvunarakstur. Auðvitað á maður ekki að gleðjast yfir óförum annarra en ég get bara ekki að því gert að hjarta mitt tekur alltaf dálítinn hamingjukipp þegar eitthvað fer úrskeiðis hjá sjálfstæðisflokknum...
Annað mál sem ég er agalega spennt yfir er JÚRÓVÍSJON á fimmtudaginn. Vááá, ég er orðin svo spennt. Ég hef aldrei áður verið svona óviss um hvernig þetta á eftir að fara. Ég vona auðvitað að við komumst upp úr undankeppninni og geri mér háar vonir um það. Ef Ísland hefur einhvern tímann átt sjéns í þessari keppni þá held ég að það sé núna. Sylvía Nótt er frábær og ég fíla hana alveg gífurlega. Algjör snilld þetta sjó hjá henni :)
ÁFRAM SYLVÍA!!!!!!!!!
Annars er lítið að frétta af okkur. Í gær ætluðum við Kristín að reyna að fara í "roadtrip" en svo mundi ég það allt í einu að það voru vortónleikar hjá kórnum sem mamma er í þannig að ég komst ekki í ferðalag. Maður verður nú að fara og sjá mömmsuna sína, það er það minnsta sem maður getur gert eftir allt sem mammsa hefur gert fyrir mann í gegnum tíðina:) Tónleikarnir voru rosalega góðir. Þær sungu mikið af íslenskum þjóðlögum og svona "mömmu" lögum (enda mæðradagurinn í gær) og það fyndna var að ég og önnur ólétt stelpa þarna sátum og grenjuðum og grenjuðum, ha ha ha... Eftir tónleikana bauð ég mömmu út að borða. Ætluðum að reyna að komast á Ítalíu en það gekk ekki, allt uppfullt og svoleiðis. Við reyndum fleiri staði en alls staðar sama sagan svo við enduðum á Pizza Hut og borðuðum yfir okkur. Úff ég var svo hryllilega södd að ég hélt ég kæmist ekki heim.
Jæja, þá hef ég það ekki lengra í bili. Bið að heilsa, ykkar Hávaðabelgur og krílið 13v4d:) ¶ 7:14 PM