Hæ hó landar nær og fjær!!! Þið hafið örugglega haldið að ég væri búin að yfirgefa ykkur aftur, en ónei, ekki aldeilis. Tölvan mín er bara búin að vera í bjánakasti undanfarið og ekki látið að stjórn. En ég hef aldeilis séð við þessu vandamáli, ég hertók bara tölvuna hennar mömmu í staðinn, hihihi...
En annars er ótrúlega margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast og það engir smá viðburðir. Í fyrsta lagi verð ég náttúrulega að nefna Júróvísjon- floppið ógurlega... Ég sat auðvitað límd við skjáinn eins og nánast allir Íslendingar þegar undankeppnin átti sér stað og hámaði í mig pulsur og hamborgara. Ákváðum að slá upp í smá grillveislu hér heima í tilefni dagsins. Það var mjög gaman allt saman, fyrir utan keppnina... SKO, ég veit alveg að júróvísjon er vondulagakeppni. Það hefur alltaf verið ljóst, en Ó MÆ GAD hvað þessi var SLÆM!!! Ég man bara ekki eftir öðru eins. Þarna tók við hver hörmungin á fætur annarri og ég hélt á tímabili að þetta ætlaði engan endi að hafa. Óléttuógleðin magnaðist upp og hormónarnir fóru í þunglyndiskast af viðbjóði. Að lokum rann svo stóra stundin loksins upp, Sylvía Nótt steig á sviðið með sínu fríða föruneyti.
Nú skal það viðurkennast að ég hef alltaf verið mjög hrifin af Sylvíu Nótt. Mér finnst þetta brilljant leikrit og held ég skilji fullkomlega út á hvað þetta gengur. Mér fannst atriðið reyndar ekki heppnast eins vel þarna úti og það gerði hér heima en eflaust spila þar veikindi meðlima eitthvað inní. Hins vegar fannst mér hljóðkerfið og annað slíkt verða mjög skyndilega slakara þegar þetta atriði kom. Fyrst hélt ég að ég væri bara að ímynda mér, væri fúl yfir að hafa ekki komist áfram og vildi kenna einhverjum öðrum um enn atriðinu. En svo fór ég að heyra þetta í kringum mig. Fleiri töldu sig hafa orðið vara við þetta. Ég get nú ekki orða bundist, ef þetta er raunin að Sylvíu hafi verið "hegnt" fyrir hegðun sína með því að láta hljóðkerfi og ljós "klikka" þá þykir mér það afar hneykslanlegt. Ég meina, ég geri mér fulla grein fyrir því að hún sýndi dónaskap og lítilsvirðingu á köflum en come on, á þetta ekki að heita fagfólk sem vinnur í þessu??? Ég bara spyr. Ef maður er á launum við eitthvað starf hefur maður þá rétt til þess að koma illa fram við einhvern "viðskiptavin" einungis vegna þess að manni líkar ekki við hann??? Ég hefði haldið ekki...
Anyways, við komumst náttúrulega ekki áfram í keppninni og munum ekki gera það á meðan þetta fyrirkomulag er á þessu öllu saman. Til þess erum við einfaldlega of fá og eigum ekki nógu marga vini, sem er kannski smá umhugsunarefni fyrir okkur öll... En ég vil samt óska Finnlandi innilega til hamingju með sigurinn svona loksins. Þeir eru lifandi dæmi þess að maður ætti aldrei að gefast upp. 45 ár í keppninni og þetta er fyrsti sigur þeirra, talandi um þrautseigju...
En að öðru öllu mikilvægara!!! Nú um helgina voru náttúrulega haldnar borgar- og sveitastjórnarkostningar um allt land. Lengi framan af hafði ég einhvern veginn engan áhuga á þessum kostningum. Mér fannst allir frambjóðendur heldur leiðinlegir, allir með sömu málefnin o.s.frv. Það að vísu lagaðist kannski ekki en eftir því sem ég fór að fylgjast meira með fréttaskýringaþáttum og annað slíkt, vaknaði áhuginn. Á laugardaginn dressaði mín sig því upp og fór ásamt öldruðum foreldrum sínum á kjörstað. Þar skilaði ég mínu atkvæði hratt og örugglega enda fyrir löngu búin að gera upp hug minn. Ég var full bjartsýni allan daginn um það að minn flokkur myndi nú hafa þetta. Ef ekki myndi hann vera annsi nálægt og bara fá einhvern annan flokk með sér í meirihlutasamstarf.
Um ellefu leytið um kvöldið voru vonir mínar brostnar. Ljóst var að mínir erkióvinir höfðu fengið mesta fylgið og að framsókn og frjálslyndir voru báðir í hálfgerðri oddastöðu hvað varðar myndun meirihluta. Mér lá við gráti. Ég hugsaði um allt það góða starf sem hefur verið unnið hér í borginni undan farin ár og alla þá niðurrifsstarfssemi sem mun eiga sér stað næstu fjögur árin. Á morgun er ég að hugsa um að leita mér áfallahjálpar ef mér fer ekki að líða betur:(
Í dag komu svo fréttirnar, það er búið að mynda meirihluta... og hverjir standa að honum??? Jú, auðvitað sjálfstæðisflokkurinn og framsóknarflokkurinn... Mér er spurn, HVAÐ Í HELVÍTINU VAR FÓLK AÐ HUGSA??? Á ég virkilega að trúa því að hér í Reykjavík búi svona mikið af fíblum sem finnst ríkisstjórnin hafa staðið sig svo ógurlega vel að þeir bara verða að koma þeim sömu að í borginni??? Þetta hlýtur að vera fólkið sem hefur ekki komist í heilaskurðaðgerðirnar sínar vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Það bara getur ekki annað verið. Við ykkur sem kusuð sjálfstæðisflokkin segi ég bara SVEI YKKUR...
En þá skulum við taka upp léttara hjal. Óléttan gengur vel að ég held. Það er reyndar voða erfitt að dæma um eitt né neitt í þeim efnum þar sem ég finn lítið fyrir þessu fyrir utan gubbið og svoleiðis. Náttúrulega ekki farin að finna hreyfingar ennþá svo maður er ekki alveg alltaf með á nótunum. En á miðvikudaginn erum við að fara í mæðraskoðun aftur og þá fáum við að heyra hjartsláttinn og svona, það er voða notalegt finnst mér:)
Jæja, held ég fari að taka mig til fyrir saumó, heyrumst síðar, ykkar Hávaðaseggur og krílið 15v4d. ¶ 6:03 PM