------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
föstudagur, júní 03, 2005
  ÞAÐ LÍÐUR AÐ ÍSÖLD!!!

Hihi, ok kannski ekki alveg strax en svona...
Ég vil biðja ykkur afsökunnar á því að hafa ekki skrifað í nokkra daga. Hef bara verið ansi upptekin og svo þegar ég var fyrir austan á mið.kvöldið ætlaði ég að skrifa en þá var netið dottið út:(
En hér er ég komin svo enginn þarf að örvænta.
Ég vil líka þakka ykkur fyrir góðar viðtökur og fyrir það að kommenta, þá líður mér miklu betur og sé að það er fólk þarna úti sem ótrúlegt en satt hefur gaman af þessu bulli mínu:) ha ha ha... Það er reyndar alveg ótrúlegt....
En allavega!!!

Á föstud.kvöldið fór ég í stúdentapartý til Hörpu vinkonu hennar Evu. Það var rosa gaman og ég drakk nú svona doldið en ekkert rosa mikið samt. Svo kom rúta og allir fóru saman í bæinn og við fórum á gamla "kaffi List" staðinn sem heitir núna "Oliver" eða eitthvað í þá áttina. Það er fínn staður. Ég var voða fín í nýjum háhæluðum skóm (sem er nú afrek út af fyrir sig) og í nýju pilsi og allt. Svaka skvísa...
Jæja, ég drakk náttlega aðeins meira í bænum og svo um fjögur leytið var staðnum lokað og við krakkarnir ákváðum að leggjast í víking og reyna að finna annan stað til að djamma á. Það náðu þau eflaust að gera en ég komst sjálf ekki lengra niðreftir en að "Kofa Tómasar frænda". Þar fyrir utan hitti ég Hr. K. (sjá einhver fyrri blogg) sem verður ekki nafngreindur eins og stendur þar sem það gæti haft áhrif á pólitískan feril minn í framtíðinni... (eða eitthvað svoleiðis)
Við hófum tal saman og hann sagði mér ýmislegt sem ég ætla reyndar að halda fyrir sjálfa mig en það var allt saman gott og skemmtilegt.
Nú, svo tókum við leigubíl saman en fórum samt í sitthvoru lagi heim.

Á laugardaginn fór ég framúr bælinu um 11 leytið því ég var að fara í brúnkumeðferð. Ég gerði það og ætla ekkert að gera það aftur:( Mér fannst þetta ekkert heppnast vel og fannst ég meira eins og skítug en brún. Veit ekki hvort að húðin mín sé bara svona skrítin eða hvort að gellan hafi bara gert þetta illa???
Jæja, seinnipartinn hringdi K. í mig og við fórum út að labba og svo út að borða og svo vídeó og ræddum málin og svona. Svo fór ég heim en á sunnud. fórum við svo í bíltúr og eitthvað dúllerí.
Á mánud. fórum við svo á Snæfellsnesið (pabbi hans kom með okkur) og gistum í vitavarðahúsinu á Malarrifi um nóttina. Það var meiriháttar. Fengum æðislegt veður og allt voða kósí:) Keyrðum svo hringinn um nesið á þriðjud. Ólafsvík, Grundarfjörður, Stykkishólmur og allt þetta og fórum svo heim. Við ræddum málin aðeins meira (bara svona pínu) og já, ætlum sem sagt að láta reyna á hlutina, tékka á málunum "so to speak".
Þannig að það er búið að vera mikið að gera og bara allt frekar furðulegt!!!

Fór svo austur á miðvikudag og kom heim í gær aftur. Ég hafði nú gert ráð fyrir því að sofa ein í rúminu mínu fyrir austan en það lítur ekki út fyrir að ég fái það:( Ég vaknaði allavega með 3 bit í gærmorgun og ég hef illan grun um að þar hafi FLÆR verið að verki, OOOOJJJJJJJJJJ!!!!!!

Í gærkvöldi fór ég í Skífuna og keypti mér geisladiska sem er eitthvað sem gerist varla. Ég kaupi mér aldrei svoleiðis. Ég keypti mér tónleikadisk með hljómsveitinni "Keane" sem ég uppgötvaði fyrir sotlu síðan. Það gerist mjög sjaldan að ég fatti eitthvað svona nýtt og fýli það og þetta er bara gaman sko...

Humm, veit ekki hvað ég ætti að segja fleira??? Í kvöld er ég að fara í ammælispartý til Kristínar vinkonu. Hún er orðin 22 ára núna, rosa stór og ég segi bara TIL HAMINGJU!!! :)
Í fyrrmálið erum við K. að spá í að fara í Þórsmörk. Langar soldið að fara eitthvað svona því síðan er ég bara föst á Úllavatni mestan part sumars.

Jæja, þá segi ég bara bless í bili, apaspili og munið, bara 12 dagar í AMMÆLIÐ MITT!!! :) veiiii...

ykkar hávaðabelgur...
 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: