Hæ hæ og halló!!! Dagurinn í dag hefur verið afar tilfinningaþrunginn og það hafa svo sannarlega skipst á skin og skúrir. Í gærkvöldi fór ég til Andra að horfa á dvd. Við vorum reyndar heima hjá Brynjari bróður hans og þangað kom Eva líka. Við horfðum á "The life aquattic" sem er algjör SNILLD. Þegar hún var búin duttum við niðrá úrslitin í "Ungfrú Ísland" og það var nú alveg hreint dásamlegt. Stelpan sem ég vildi að ynni lenti í 3. sæti en eins og ALLIR vita þá vann náttlega hún þarna Unnur, dóttir hennar Unnar Steinson fyrrverandi fegurðardrottningar. Humm, furðulegt. Mætti halda að þetta hafi verið fyrirfram ákveðið, en nei, svoleiðis gerist ekkert á Íslandi... Er það nokkuð???
Jæja, þegar þessi æsispennandi kjötskrokka og persónuleikadýrkun var búin settum við "Open water" í tækið. Mikið er ég fegin að við gerðum það. Mig hefur lengi langað til þess að læra að kafa en þessi mynd fékk mig til að hætta snarlega við þá áætlun. Ég hugsa að ég ætli bara hreinlega aldrei að fara aftur frá Íslandi því maður á það alltaf á hættu að hrapa eða sökkva og þá lendir maður kannski í sjónum og það vil ég sko ekki. Vááá, þetta er mjög krípí mynd, allavega fyrir minn smekk:(
Var svo komin heim um hálf fjögurleytið alveg að deyja úr þreytu. Vaknaði um tíu í morgun til að fara í sturtu og svona og gera mig sæta fyrir áðurnefndan landsfund. Fór sko ekki í gær því ég nennti ekki... Brjálæðislegur eldmóður í mér alltaf:) En já, ég sem sagt sletti framan í mig alls konar fínu dóti og reyndi að afmá minn sanna persónuleika eins vel og ég gat úr andlitinu. Fór svo upp í Egilshöll þar sem var tilkynnt um úrslitin í formannskjörinu. Til allrar hamingju vann mín kona með yfirburðum og hlakka ég svo sannarlega til að taka þátt í starfi flokksins undir hennar stjórn:) Hékk svo þarna eitthvað og vafraði um, alein og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera. Fór að spjalla við e-a eldri konu í biðröð í sjoppunni og komst að því að hún og ömmusystir mín heitin voru góðar vinkonur á sínum tíma. Já, svona er Ísland yndislegt:) Jæja, ákvað svo að drífa mig bara heim fljótlega eftir tvö og þegar þangað kom hlammaði ég mér upp í sófa með bókina mína. Að sjálfsögðu steinsofnaði ég og vaknaði sennilega tveimur tímum seinna við það að síminn minn hringdi. Þá var ég reyndar líka að frjósa úr kulda og búin að slefa þessi lifandis ósköp í púðann í sófanum... Alltaf svoooooo dömuleg.
Anyways, símtalið reyndist vera, að ég held, hálfgert "booty-call" frá kunningja mínum. Hann var svona að tékka hvort ég ætlaði ekki að djamma í kvöld og hvort hann mætti hringja í mig. Mér finnst það ekkert sérlega "flattering" sko. Ég sagði reyndar að hann gæti alveg prófað en ég vissi samt ekkert hvað ég ætlaði að gera. Sem var reyndar alveg sannleikanum samkvæmt þar sem enginn af þessum svokölluðu vinum mínum var búinn að hafa samband og biðja mig að vera memm:( Er´ða nú... Þegar hér er komið sögu er klukkan orðin hálf-sjö og þið vitið öll hvað það þýðir!!! Jebbs það er rétt. Aðeins hálftími í Júróvisjón... Vúhú, GO NOREGUR eins og ég sagði ykkur í gær. En það var nú öðru nær. Reyndar fannst mér fullt af lögum í keppninni vera fín og svoleiðis en ég var ekkert brjálæðislega hrifin af þessu Gríska lagi:( Jú jú, flott gella og svoleiðis en samt. Mjög sátt við það að fleiri Íslendingar huxuðu eins og ég og gáfu Noregi stig. Sýnir að við erum ekki alveg húmorslaus:)
En já, sem sagt gleði í pólitíkinni og sorg í júróvisjon. Maður fær víst ekki allt sem maður vill, eða hvað???
Bless og takk, ekkert snakk. Ykkar syngjandi glaði Norsaravinur, Hávaðabelgurinn:) ¶ 11:45 PM