Halló öll sömul í dag!!! Ég get því miður ekki logið að sjálfri mér í dag að allt sér frábært :( Ég er enn svooooo miður mín eftir gærkvöldið. Auðvitað þarf ég ekki að útskýra það neitt nánar fyrir sönnum Íslendingum þar sem ég hef mjög góðar heimildir fyrir því að nánast ALLIR sátu fyrir framan imban klukkan sjö í gær til að fylgjast með Selmu og stelpunum berjast fyrir tilverurétti sínum í aðal-júróvisjon á laugardaginn. Þær stóðu sig mjög vel að mínu mati en vóóóóó, hvað var með þessa búninga eiginlega??? Hef sjaldan séð neitt eins ljótt á minni ævi og hef ég þó séð ýmislegt... Úff, ég er persónulega þeirrar skoðunnar að búningarnir hafi haft áhrif á atkvæðagreiðslu Evrópubúa. Þeir vógu samt ekki jafn mikið og það að þurfa að berjast um athyglina við illa risann í austri...
Já, þið vitið hvað ég er að tala um. Gömlu Sovétríkin og Júgóslavía hafa gjörsamlega tekið yfir þessa áður mjög fínu keppni. Ég held að það sé ekki nokkur vinnandi vegur fyrir okkur hin að komast neitt áfram á meðan þau fá að vaða uppi óáreitt... Kannski ef við myndum bjóða Bandaríkjunum að gerast partur af Skandinavíu gætum við farið að vinna??? Maður veit ekki???
Ég hef ákveðið að halda með frændum okkar Norðmönnum á morgun í aðalkeppninni. Mér finnast þeir frábærir og lagið þeirra bara svona fínt glys-rokklag. Ekkert út á það að setja:) GO NOREGUR!!!
Annars var kvöldið í gær mjög fínt. Ég bauð Ingunni, Evu og Kristínu yfir í stelpukvöld því að Ingunn er að fara að yfirgefa okkur á laugardaginn. Hún ætlar heim til sín austur á firði að vinna í sumar. Ég ákvað að reyna að vera doldið myndarleg og útbjó ostabakka og heita salsa-ídýfu. Mér fannst þetta voða gott og núna líður mér eins og feitabollu:( Borðaði alltof mikið... Pabbilabbi var líka með okkur og hann féll vel í hópinn:) Eftir vonbrigðin ógurlegu fórum við að kíkja aðeins á gamlar keppnir sem pabbi gróf upp e-s staðar frá og leituðum ítarlega að lagi sem Kristín vildi ólm fá að sjá. Það var með e-m gömlum köllum sem voru að humm, rúnka sér, "roðn" á handriði, að hennar sögn. Ég sjálf man ekki alveg eftir þessu en sumu reynir maður náttlega bara að gleyma... Síðan kjöftuðum við og horfðum á "Desperet houswifes" sem eru svo sannarlega örvæntingarfullar. Þetta er held ég annar þátturinn sem ég hef séð og jú, þetta er svo sem ágætt dót. Eftir það fóru gellurnar og ég fór upp í rúm að lesa (Pride & predjudice í svona 7 milljónasta skiptið:) ). Stuttu seinna kom mútta heim úr bekkjarpartýi. Ha ha ha, hún var svo fyndin. Doldið vel í glasi svona... Þessar mömmur, þær kunna ekki að skammast sín nú til dags, hihihi...
Jæja, þá ætla ég að fara að hætta þessum pistli mínum. Í dag byrjar Landsþingið og ég ætla að fara á það. Þetta verður ábyggilega fínt.