------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
miðvikudagur, desember 01, 2004
  LOKSINS ER ÉG HÆTT AÐ ELSKA ÞIG!!!

Halló halló landar mínir nær og fjær. Hvað er á seyði:)
Ég er búin að hafa það nokkuð gott síðustu vikurnar. Vinnan mín er mjög skemmtileg, gamalt fólk er stóóóóórbilað. Það er alveg á hreinu. Örugglega gaman að vera gamall og geta ruglað í öllum og öllum finnst það bara sætt:) Hí hí... Ég hef gamla fólkið nú sterklega grunað um að vera ekkert eins bilað og það lætur líta út fyrir. Svo hittast þau örugglega á laun reglulega og bera saman bækur sínar, tala um hvað við hin erum öll vitlaus að trúa þeim...

Anyways!!! Hávaðaseggurinn er nánast kominn yfir Hr. K.
Ég held að enginn geti trúað því hvað það er mikill léttir. Við hittumst fyrir svona einni og hálfri viku og það var mjög gaman og allt þannig en samt... Stundum fékk ég svona "hann er nú ekkert það sætur" og "æi, búin að heyra þessa sögu milljón sinnum" tilfinningu og það rennir styrkum stoðum undir kenningu mína:) Veeeeeeeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii...
Gaurinn sem ég var að tala um að ég væri skotin í í síðasta bloggi er ekki lengur á listanum. Við áttum reyndar eitt svona voða sætt kvöld niðrí bæ fyrr í mánuðinum. Eitthvað smá svona kossaflens og þannig en ekkert meira og ég er löngu búin að gleyma honum, þó þetta hafi verið agalega næs.

Ég er nebbnilega soldið skotin í öðrum núna (ok ok, ég veit að þetta er geðveiki, en svona er ég bara og hef alltaf verið...). Hann er 22 ára og við skulum kalla hann "Litla-stóra". Það er vegna þess að hann er yngri en ég en hann er líka miklu stærri en ég:) Litli S, er algjört krútt og án þess að ég geti verið viss þá held ég að þetta sé fínn strákur. Hann er allavega voðalega góður við mig. Við kynntumst á einkamál.is og hittumst síðastliðinn fimmtudag (25. nóv). Þetta fór allt frekar hratt af stað, gisti hjá honum um helgina og svoleiðis, þannig að nú er kominn tími á að róa þetta aðeins. Kynnast betur, gera eitthvað saman og svoleiðis. Ég verð að viðurkenna að ég er doldið spennt en ég veit að það er bannað. Þá verður maður bara fyrir vonbrigðum... En ég er samt með fiðrildi í mallanum. Litli S er eins og ég sagði áðan, hávaxinn (rúmlega 190 cm) dökkhærður með stór alveg ofsalega falleg augu. Hann er rosalega sætur. Ég kikna eiginlega bara í hnjánum í hvert sinn sem ég lít á hann. Hann hefur gaman að því að elda, hann spilar á nokkur hljóðfæri og semur tónlist og svo er hann hjólabrettastrákur. Eins og ég sagði "ALGJÖRT KRÚTT!!!" Auðvitað þarf svo sem ekkert að verða úr þessu en við sjáum hvað setur. Þetta hefur allavega hjálpað mér að komast yfir Hr. K...

En að öðru. Fyrir rúmri viku var litla systurdóttir mín skírð. Litla skottið brosti til prestsins allan tímann og var ekkert smá sæt. Hún var skírð heima hjá sér og athöfnin var mjög skemmtileg og persónuleg. Ég las upp ljóð sem ég samdi um hana og afi hennar í föðurætt samdi lag og ljóð um hana sem var spilað af geisladisk. Svo fékk hún hið fallega nafn Hildur Þórey:) Það eru allir svo glaðir yfir því að hún skildi fá falleg og venjuleg íslensk nöfn en ekki eitthvað sem hún þarf að líða fyrir seinna:) Systir mín og mágur eru svo smekkleg;) hí hí hí...

En jæja, þá held ég að það sé komið nóg af þessu bullumsulli. Skrifa meira síðar þegar ég hef eitthvað að segja...

E.s. Ég er að lesa bók núna sem er 897 bls. Hún er á ensku með mjög litlu letri... Ég SKAL klára hana. Takk innilega Elísabet frænka að lána Tourette sjúkling þessa bók, good call... Hi hi hi
 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: