------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
sunnudagur, desember 05, 2004
  Hæ hó allir!!!
Eins og þið vitið sennilega flest að þá er fjölskyldan mín doldið biluð. Rétt í þessu var ég að spyrja pabba hvort hann læsi þetta blogg mitt einhvern tímann en hann sagði nei. Ástæðan fyrir því að hans sögn er sú að hann sé svo lengi að lesa og lesi alltaf ská niður...
Ef einhver getur útskýrt fyrir mér hvað það þýðir þá bara go ahead!!! Hí hí hí, pabbi krútt...

Anyways. Í gærkvöldi fór ég með Litla-S í bíó. Það var nokkuð fínt bara. Ákvað að vera ekkert að dúllast neitt, taka í hendina á honum eða eitthvað svoleiðis. Hann gerði það ekki heldur. Er ekki viss um að það séu einhverjir neistar á milli okkar. Allavega er ég ekkert að deyja úr spenningi sko. Þetta kemur í ljós. Týpískt að þá fari hann að taka við sér, þegar ég nenni ekki meir. Ha ha ha...

Annars var ég veik í dag og fór ekki í vinnuna:( Búin að vera slöpp í maganum undanfarið. Ég þoli ekki svoleiðis. Verð að fara að koma mér til læknis og láta tékka á þessu. Kannski er ég bara með óþol gegn einhverjum mat eða eitthvað. Ef svo er er það örugglega eitthvað sem mér þykir ROSALEGA gott og vil ekki vera án. Það er alltaf svoleiðis:(

Jæja, ákvað bara að kíkja aðeins hingað og leyfa ykkur að fylgjast með. Er núna að fara að tala í símann við gaur sem ég kynntist áðan á netinu... hihihi, allt á fullu hjá mér. Síðan held ég að ég lesi smá og fari svo að lúlla. Kvöldvakt með ellismellunum annað kvöld:)

Bless og takk, ekkert snakk, ykkar Hávaðaseggur!!!

 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: