------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
fimmtudagur, nóvember 04, 2004
  Hæ hæ allir!!!
Langt síðan síðast, ég veit. Ok, smá úrdráttur frá lífi mínu undanfarinn mánuð.
Ég hætti að vinna hjá Myllunni fljótlega eftir að ég byrjaði. Þetta var bara að gera út af við mitt viðkvæma sjálf. Ég var atvinnulaus aftur í smá tíma, 2 vikur held ég en fékk svo vinnu á hjúkrunnarheimili fyrir aldraða. Ég var alls ekkert viss um að ég myndi höndla þetta starf, sérstaklega, skipta og skeina, partinn en mér finnst þetta mjög skemmtileg vinna. (ekki kannski skipta og skeina parturinn, en allt hitt) Það er yndislegt fólk á deildinni minni, bæði sjúklingar og starfsmenn og mér líður mjög vel þarna. Ég á sennilega eftir að koma með einhverjar fyndnar sögur þaðan þegar fram líða stundir:)

Einnig hef ég lítið sem ekkert haft samband við Hr. K.
Það er eiginlega soldið mikill léttir ef ég á að vera hreinskilin. Ég VERÐ að komast yfir þetta og þó svo mig langi að hitta hann og vera vinur hans og allt það þá verð ég víst bara að beita mig hörðu hvað þetta varðar. Öðruvísi tekst það ekki.

Þetta gengur alveg ágætlega núna, enda vill svo frábærlega til að litli hávaðaseggurinn hefur orðið uppvís af því að vera soldið skotin í öðrum strák... tíhíhí, bannað að kjafta.
Hann er að vísu dáldið yngri en ég en mér er alveg sama, hann er svo mikið krútt. Hef reyndar ekki hugmynd um hvort hann hefur einhvern áhuga á móti en það kemur í ljós nógu snemma. Þetta er samt spennandi. Það er svo gaman að vera með fiðrildi í maganum og svoleiðis:)

Ég er líka búin að vera soldið mikið upp í leikhúsi undanfarið. Ég er reyndar ekki að leika í neinu eins og er en er núna að sjá um miðasöluna og sjoppuna. Það er fínt. Einhver verður að sjá um það svo það má alveg eins vera ég:)

Humm, ég man ekki eftir fleiru í augnablikinu sem mig langar að tala um. Kannski kemur það seinna, eða á morgun eða eitthvað og þá bara læt ég verða að því.

Þar til næst, Bless og takk, ekkert snakk. Ykkar noisy!!!
 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: