------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
mánudagur, september 20, 2004
  LITLA SÆTA LJÚFAN GÓÐA!!!

Hæ hæ öll sömul. Nú ætla ég að láta verða af því að skrifa einu sinni enn.
Hjá mér hefur ýmislegt verið á seiði síðan síðast. Eins og glöggir lesendur muna ákvað ég að skella mér til útlanda og það gerði ég.

Þann 17. ágúst, á 30 ára ammæli mágs míns fór ég út á flugvöll (ammælisbarnið keyrði mig) og tók hádegisvélina til Kastrupp í Köben.
Þaðan tók ég lest yfir til Malmö þar sem ég fór að heimsækja Elvu og Reyni. Ég var hjá þeim í 5 daga og það var alveg æðislegt. Við fórum til Lundar sem er háskólabær þarna og ég verslaði líka eins og mér væri borgað fyrir það (sem því miður mér var ekki :( )

Jæja, eftir mjög ánægjulega dvöl í Svíþjóð tók ég lestina til baka til Köben til að heimsækja Bjögga frænda og Kidda klippara, en þeir leigja saman þar.
Ég var hjá þeim í 4 daga og það var líka alveg rosa gaman. Við Bjöggi fórum í dýragarðinn og tívolí þar sem ég komst að því að ég er drottning (ekki hægt að útskýra) og þar er einnig mjög handhægt að dömpa fólki;) Fór líka á alveg meiriháttar pöp sem heitir "The Moose" og þar var allt fullt af brjáluðum Íslendingum.

Nú, eftir þetta lá leið mín til Óðinsvé til að heimsækja Kristrúnu frænku og Atla Rafn. Ég var í 3 daga hjá þeim og áttum við frábærar stundir saman. Rosalega var nú gaman að hitta þau aftur og Atli er orðinn svo stór. Í Óðinsvé var aðallega chillað og hangsað og við borðuðum fullt af pizzu:) Svo fór ég með Kristrúnu á skóladjamm á laugardagskv. (kvöldið áður en ég fór heim) og ég lýg því ekki þegar ég segi að ég hef ekki orðið svona drukkin í háa herrans tíð. ÚFFFFF, þetta var svakalegt. Ég var svooooooooooooooooooooo þunn daginn eftir að ég hélt í alvörunni að ég lifði það ekki af.

Um 18:00 leytið á sunnudeginum drösluðu þau mér svo upp í lest til Köben þar sem ég mátti hírast í klefa í 2-3 tíma. Það var DÁSAMLEGT...
Rölti síðan um flugvöllinn í smá tíma og svo flaug ég heim.
Þetta var meiriháttar ferð og ég sé sko ekki eftir því að hafa farið:)

En þetta er ekki það eina sem hefur gerst. Um þarsíðustu helgi fluttum við búferlum, ég og foreldrar mínir. Núna erum við staðsett í Bryggjuhverfinu aka Lególandi og það er mjög fínt. Reyndar á ég rosalega furðulega nágranna. Ein konan í hverfinu er alltaf að koma í heimsókn og segjast vera frænka mín... og svo er ein gella sem býr hérna rétt hjá sem segjist vera vinkona mín... Ég veit ekki alveg hvað ég á að halda og er orðin doldið hrædd við þetta fólk. Reyndar eru þetta bara Olga frænka mín og Sara vinkona mín. Það er frábært að hafa þær hérna. Sérstaklega Söru þar sem hún er nýfarin að búa og á yfirleitt eitthvað gott í skápunum hjá sér;) hí hí hí...

Jæja, þá er komið að stærsta viðburði lífs míns í langan tíma og hann útskýrir titilinn á þessu bloggi.
Föstudaginn 17. september gerðist nebbnilega lítið kraftaverk. Systir mín eignaðist litla barnið sitt. Barnið er stelpa, 13 merkur og 53 cm og hún er YNDISLEG. Ég fékk að sjá hana þegar hún var bara 2 tíma gömul. Svo fór ég aftur að skoða hana í gær, þá voru þau komin heim. Hún er svoooooo fallegt og dásamleg og maður getur varla slitið sig frá henni. Ekki misskilja mig, stokkarnir eru ekkert farnir að klingja hjá mér, en manni getur samt fundist þetta æði fyrir það.
Þannig að ég er orðin MÓÐURSYSTIR og ég ætla að vera rosalega dugleg við að spilla litlu systurdóttur minni :) ROSALEGA dugleg... ha ha ha

Jæja, later. Ykkar Hávaðaseggur!!!
 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: