Hæ hæ öll sömul.
Hvað er títt??? Hjá mér er svo sem allt ágætt eða svona hér um bil. Ég fékk vinnu í síðustu viku og ég held að mér sé alveg óhætt að segja að þetta er LEIÐINLEGASTA vinna sem ég hef nokkurn tímann komið mér í. Ég er að smyrja sultu og kremi og svoleiðis á kökur hjá myllunni. Rúlla upp rúllutertum, setja súkkulaði á súkkulaðikökur (go figure...) og hlaupbangsa og eitthvað svona dúllerí og það er BORIIIIING!!!
Reyndar er konan sem ég vinn með algjör dúlla. Hún er tæplega sjötug og hefur verið að vinna við þetta í 30 ár held ég. Yfirmennirnir ætluðu að láta hana minnka við sig vinnuna og hún samþykkti að hætta klukkan tvö á daginn í staðinn fyrir þrjú. Allir voða glaðir með það, nema hvað að í staðinn fór hún bara að mæta klukkutíma fyrr á morgnanna. Ha ha ha... ein sem vill ekkert hætta:) En hún er fín.
Annars er þetta bara leiðinlegt jobb og ömurleg laun. Það hefur að vísu einn kost í för með sér. Alveg sama hvað ég fer að gera eftir þessa vinnu þá get ég ekki fengið verri laun:)
En nóg um það. Getur einhver gefið mér ráð??? Þannig er að ég er bara alveg agalega hrifin af Hr. K ennþá. Ég er búin að prufa að tala ekkert við hann, til að komast yfir þetta. Ég fór til útlanda til að reyna að gleyma honum, ég hef reynt að vera bara vinur hans, en það er sama hvað ég geri eða geri ekki, ég get ekki gleymt honum. Svo hefur hann alltaf samband aftur og ég hoppa alltaf til. 'O mæ gat ég er ÖMURLEG!!! Grát grát grát...
Plís gellur og gæjar, ef þið vitið eitthvað hvað ég get gert þá endilega segið mér það, ég er ráðalaus:(
En það er annars bannað að vera í volæði. Þess vegna ætla ég að fara yfir til Söru og Finnst á eftir og horfa á "The Practice" á eftir. Þá líður manni vel því maður er allavega ekki að fara í fangelsi :)
Um helgina ætlaði ég að fara í Laufskálarétt. Var búin að fá far með Sigríði Ingu norður (takk rúsína) og búin að fá gistingu hjá Stefý (líka takk til þín krútt) en svo varð ég slöpp og treysti mér ekki því ég er aumingi:(
Stelpurnar hringdu í mig á föstud.kv. (takk stelpur...) og það var örugglega geðveikt gaman hjá þeim. Ein pínu öfundsjúk sko. En ég SKAL mæta á næsta ári, heyriði það!!!
Ég fór að hitta litlu krúsu í gær. Hún er svooooooooooooooooooooo falleg og yndisleg. Hún þurfti að fara á spítala í vikunni til að fara í ljós því hún var með smá gulu. En það lagaðist allt og nú er hún bara yndislegust. Ekkert smá erfitt að slíta sig frá henni:)
Jæja, nenni ekki að skrifa meira í bili. Blessó allir, ykkar Ungfrú Hávaðasöm:)
¶ 7:54 PM