------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
föstudagur, ágúst 13, 2004
 
EINU SINN´Á ÁGÚSTKVÖLDI...

Ok, nú er ég komin aftur í öllu mínu veldi og ég lofa ykkur því aðdáendur mínir að vera dugleg að skrifa. Ég dauðskammast mín fyrir þetta vítaverða kæruleysi sem ég hef sýnt undanfarna mánuði og mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að gera skyldu mína við guð og ættjörðina, að hjálpa öðrum og halda skátaheitið...
Uuuuu, já, eða sem sagt bara vera dugleg að skrifa:)

Síðast skyldum við við hávaðasegginn í mjög vofenglegum aðstæðum. Ég var skotin í Hr. K sem var svo sem gott og blessað en öll sú saga er svoooooooooooooo löng að ég gæti skrifað 3. binda bók um þetta með ítarefni. En ég ætla að sleppa því. Í staðinn segji ég ykkur bara það að við erum búin að "deita" af og á síðan um áramótinn. Kærastan komst að þessu og dreif sig í burtu med de samme, sem er skiljanlegt. Þá var ég voða glöð að vissu leyti og bjóst við að nú færi allt að blómstra en sú varð ekki raunin. Hr. K vill ekki samband frekar en aðrir gaurar sem ég hitti og það er bömmer eeeeeen ég lifi það af:)
En nóg um það, tölum um eitthvað skemmtilegt...

Í næstu viku hef ég ákveðið að skella mér til útlanda. Þannig er mál með vexti að ég varð 25 ára í sumar. Já, ég veit að þið trúið því ekki, litli kjáninn orðinn svona stór, en þannig er það nú samt. Jæja, foreldrar mínir ákváðu að gefa mér flugpunktana sína í ammælisgjöf og þar sem þeir duga mér fyrir fari (fram og til baka, thank god...) eitthvert svona stutt ætla ég að skella mér út:)
Veeeeeiiiiiiiiiiiii... Það verður æði. Ég ætla að byrja á að heimsækja vinafólk mitt sem býr í Svíþjóð í nokkra daga. Þaðan ætla ég svo til Bjögga frænda í Köben og við ætlum svo að fara saman til Kristrúnar frænku (og systur hans Bjögga) sem býr í Óðinsvéum... Ég hef aldrei stigið fæti á danska grund og hlakka mikið til að kíkja á baunana:)

Aðrar fréttir eru þær að ég er að öllum líkindum að fara að flytja héðan úr litla Holtinu mínu. Mamma og pabbi gerðust stórtæk í vikunni og ákváðu að flytja allt sitt hafurtask upp í Lególand (aka Bryggjuhverfi) og er sem sagt verið að vinna í því máli. Ég fæ stærra herbergi, það er BAÐKAR í íbúðinni (þeir sem þekkja mig vel vita hversu miklu máli það skiptir...) lyfta, þvottahús í íbúðinni og öll þessi helstu þægindi. Þetta verður meiriháttar.

Nú, hún stóra systir mín er orðin FEIT!!! En það er nú reyndar bara tímabundið því að hún hýsir eitt stykki bumbubúa núna. Litla krílið á að koma í heiminn 12. sept. og ég vona svo innilega að hann láti ekki bíða lengi eftir sér. Ég er orðin svo hrikalega spennt. Þetta er svo yndislegt og ég er að fríka út í barnafatakaupum. (ég er reyndar ekki eins slæm og mamma, sem betur fer því þá færi ég á hausinn...)

Já svo hef ég tekið þá miklu og góðu ákvörðun að skella mér í skóla í haust. Ég verð að fara að klára þetta blessaða stúdentspróf svo ég geti farið að vera eins og allir hinir. Það er ekkert gaman að skera sig of mikið úr fjöldanum:( Ég komst reyndar ekki inn í dagskólann því að öllum að óvörum og algjörlega óvænt var 16 ára árgangurinn í ár svo stór. Humm, það mætti halda að þau hafi bara ekki verið til í 16 ár þetta virtist koma svo á óvart. En um áramótin ætti ég að komast inn. Þangað til ætla ég í kvöldskóla.
Þar af leiðandi verð ég að vinna á daginn svo að ef einhver er með vinnu handa mér þá endilega látið mig vita.

Fyrir þá sem ekki vita þá er ég líka komin í Leikfélag Hafnarfjarðar. Það er rosalega gaman. Ég var að leika í sýningu hjá þeim í júní sem heitir "Hamskiptin" og er leikrit samið upp úr bók Frans Kafka. Það fjallar um gaur sem vinnur geðveikt mikið en einn daginn kemur hann veikur heim og upp frá því byrjar hann að breytast í pöddu. (nánar tiltekið MOLDUXA, en það er bjöllutegund sem hefur lítið annað hlutverk en að safna taði úr dýrum og búa til kúlur úr því og velta því á undan sér út um allt, mjög undarleg hegðun to say the least...)
Anyways, ég lék systur þessa óheppna manns og það var mjög gaman. Ég get því miður ekki verið mikið með fram að áramótum út af skólanum en það kemur leikrit eftir þetta leikrit :)
(vá ég er svo heimspekileg stundum...)

Jæja, þetta er eiginlega búið að vera mjög leiðinlegt blogg. Fróðlegt, en engu að síður grautleiðinlegt. Vona að þið fyrirgefið mér í þetta sinn, þarf aðeins að rifja upp hvernig þetta er gert:)

Ég segi bara bless og takk, ekkert snakk og eigiði góðar stundir. Þar til næst, ykkar Hávaðabelgur :) !!!
 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: