Gleðileg jól kálhausar nær og fjær!!! Það mætti halda að ég c búin að vera puttabrotin á öllum þar sem ég hef ekki skrifað í TVO mánuði... Þetta er svakalegt. Það hefur nú ýmislegt gerst á þessum langa tíma í lífi brjálæðings enda sjaldan lognmolla þar sem stormsveipur fer. Ég veit bara ekki alveg hvar ég á að byrja. Jú, ég gæti sagt ykkur að nú er ég algjörlega komin á botninn hvað alla stráka vitleysuna varðar. Þið spyrjið sjálfsagt "HA!!! Er hægt að komast neðar en neðst???" og ég get með sanni sagt "JÁ!!!!!"
Þannig er mál með vexti að núna er Hávaðaseggurinn skotinn í gaur, ótrúlegt en satt. Þetta er nokkuð frábær gaur sem við ætlum að kalla Hr. Kaptein eða bara Hr. K.
Ég hitti Hr. K. á djamminu. Ég var búin að ákveða að taka mér langt og gott strákafrí sem felst í því að spá ekkert í stráka og tala ekki við þá nema þeir séu a) skyldir manni, b) vinir manns, eða c) að veita manni einhvers konar þjónustu sem krefst þess að maður tali við þá af kurteisisástæðum. Þetta gekk rosalega vel alveg þar til ég fór að djamma þetta örlagaríka kvöld í lok nóvember. Ég var með stuðgleraugun og mjakaði mér í áttina að barnum og þar sem ég stend þar og er að reyna að láta taka eftir mér til að fá afgreiðslu kemur þessi gaur og fer að tala við mig. Ég gat nú kannski ekki tekið til fótanna enda með eindæmum kurteis ung stúlka og vildi ekki skemmileggja kvöldið fyrir blessuðum drengnum. Við tölum og tölum og hann er bara frábær og skemmtilegur og svo kemst ég að því að hann er eldgamall (31 árs) og ég átti bara ekki til orð. Jæja, ég var nú nokkuð fljótt að komast yfir gamlamanna fordómana og við héldum áfram að tjatta. Úff, vitiði hvað, þessi saga er aaaaaaaaaaaalltof löng til þess að ég mögulega nenni að skrifa hana alla. Best að stikla á stóru. Hann á sem sagt kærustu sem hann langar að hætta með og bla bla bla en vildi geyma það fram yfir jól. Núna eru jólin búin og ég veit ekki neitt en ég er að fara með honum á kaffihús í kvöld held ég. Ég er samt búin að gera honum það fullljóst að ég ætla ekki að lúlla hjá honum fyrr en það er alveg á hreinu að hann sé hættur með henni. Hann er sko búinn að vera að því en svo dregið það til baka og bla bla bla bla bla bla og endalaus leiðindi og mér er farið að líða eins og gellu í ömurlega týpískri bíómynd. "Víst elskar hann mig og ætlar að fara frá henni, hann getur það bara ekki núna af því að ...." ó mæ god sko :( Við erum samt alveg búin að kyssast og þannig og ég veit að það má ekkert heldur, skamm skamm skamm, en hann er bara svo mikið yndi. Hann sagði t.d. við mig "það er svo gott að kyssa þig því það er eins og þetta "fitti" einhvern veginn. Svona eins og tveir rörbútar sem er verið að skrúfa saman..." Svona eru strákar nú stundum rómantískir við mig, ha ha ha... Mér hefur aldrei áður verið líkt við rörbút, það verður að segjast eins og er.
En að öðru. Ég er að hætta í vinnunni minni, síðasti dagurinn á morgun. Ég var bara ekki alveg að höndla fólkið sem ég vinn með. Þau eru upp til hópa húmorslaus og fremur óspennandi öll sömul og ég get bara ekki unnið á meðal þannig fólks. Hvað ég ætla að fara að gera núna veit ég ekkert en það reddast :) Annars held ég að ég sé að verða lasin. Ég er allavega komin með kvef og svona illt og heitt í höfuðið og augun, mér finnst það ekkert gaman:( Jæja, núna ætla ég að fara að skella mér í sturtu og allt þetta dót og "sjæna" mig örlítið til fyrir kaffihúsaferðina. Þetta verður örugglega athyglisvert...
Bless og takk, ekkert snakk, ykkar Hávaðabelgur :) ¶ 8:11 PM