------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
mánudagur, október 27, 2003
  FYRIRGEFIÐI FJÓRTÁN SINNUM!!!

Þetta segja þau í Andabæ alltaf þegar þau þurfa að biðjast afsökunnar á einhverju. Mér þykir ég þurfa að biðja ykkur lesendur góðir, nær og fjær, afsökunar á því að hafa ekki skrifað svona lengi. Þetta er náttúrulega vítavert kæruleysi af minni hálfu og það ætti að setja mig í Gapastokkinn fyrir þetta. En nóg um það.
Þessa stundina er ég að bíða. Ég er að bíða eftir því að mamma og pabbi komi heim. Þau skelltu sér nebbnilega til Búdapest ásamt vinnufélögum hans pabba. Þau fóru á fimmtudagsmorguninn og ég, morgunhaninn mikli varð þess mikla heiðurs aðnjótandi að fá að keyra þau á völlinn. Ég fékk náðasamlegast að vakna klukkan 5. Það var yndislegt. Jæja, ég er sem sagt búin að vera ein heima og það hefur verið fínt, en það er nú doldið notalegt að hafa þessi krútt hérna líka. Maður verður doldið einmanna svona til lengdar.

Í gærkv. fór ég á starfsmannadjamm. Það var ágætt. Við byrjuðum á því að hittast á Tapas barnum niðrí bæ og þar var borðað og borðað. Mjög góður matur fannst mér. Einnig var fólk að fá sér áfengi en þar sem ég er náttlega bindindisfrömuður Íslands fannst mér það ekki alveg við hæfi og drakk bara vatn allt kvöldið. (og svo les mamma þetta líka og ég vil ekki að hún haldi að ég sé algjör byttifylla... Takiði bara þátt í þessu með mér ;)
Þetta var mjög gaman en síðan var farið heim til einnar gellunnar og þar var ekki eins gaman. Ég fór nú fljótlega þaðan með Ellu Gellu sem dró mig í eitthvað partý hjá einhverju fólki sem ég þekkti ekki neitt og Ella ekki heldur. Á meðan misstum við víst af æsispennandi ælukeppni milli elsta og yngsta starfsmannsins á vaktninni. Mikið var ég nú svekkt yfir því en mér er tjáð að sá yngsti hafi unnið með yfirburðum. Það er auðvitað yndislegt. Jæja, ég fór svo aftur í þetta partý hjá gellunni úr vinnunni og þar var verið að stumra yfir litla greyinu sem hér var komið sögu lá dauður á hrúgu af pappakössum á gólfinu. Ég nennti þessu ekki því mig langaði að skemmta mér en ekki stumra yfir líki svo að ég dró einn kokkinn bara með mér niðrí bæ. Ella vildi vera áfram í partýinu hjá fólkinu sem við þekktum ekki neitt. Ég og kokkurinn fórum á 22 þar sem hann hitti kærustuna sína (og með henni var ógrynni af mjög undarlegu fólki) og þar var ógisslega gaman. Þar hitti ég líka kunningja systur minnar og með honum var besti vinur mágs míns. Við þekkjumst sko alveg og hann er frábær gaur, svo ég hékk bara með honum það sem eftir lifði kvölds. Þegar ég nennti ekki meir löbbuðum við svo saman upp Laugarveginn, (hann býr á móti Vero Moda og lætur systur mína vita þegar útsölurnar koma) en þar sem það var grenjandi rigning úti tók ég leigubíl restina heim til mín. Leigubílstjórinn var krúttleglur strákur sem er 24 ára og heitir G. Hann lét mig hafa símanúmerið sitt og sagði mér að hringja.
Þetta kvöld var sem sagt alveg ágætt með ekki eins ágætum milliköflum...

Bæjó í bili, Hávaðaseggurinn...
 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: