Hæ hó, ég er komin aftur. Það er svo skrýtið með þetta blogg mitt að í hvert sinn sem ég sest niður til að skrifa huxa ég með mér "jæja, ég ætla bara að skrifa eitthvað stutt í þetta skiptið" en svo bara get ég aldrei hætt og áður en ég veit af er ég búin að skrifa 500 síðna æfisögu í þremur bindum. En allavega...
Í síðustu viku sá ég fyndnustu frétt í heimi í D.V. Fyrirsögnin var "Páfinn við slæma heilsu." Ég hló svo mikið að ég vissi ekki hvert ég ætlaði. Ég meina, hefur þessi blessaði páfi einhvern tímann verið við góða heilsu??? Ef hann væri við verri heilsu en venjulega væri hann sennilega dauður. Hann lítur allavega út fyrir að vera það, og svo koma þeir með eitthvað svona. Ótrúlegt, ha ha ha!!!
Í síðustu viku kom frægur maður í vinnuna mína. Reyndar komu TVEIR frægir menn sama daginn en það er aukaatriði. Fyrri gaurinn var Halli, trommarinn í Botnleðju. Mér þykir hann doldið krútt og S. vinkona hefur ákveðið að hann sé tilvonandi eiginmaður hennar. Þess vegna langaði mig mjög mikið að biðja hann um eiginhandaráritun fyrir S. vinkonu en ég er svo mikill lúði að ég þorði því ekki. Ég sagði Gunnu, yfirmanni mínum þetta og hún bauðst til þess að fara fyrir mig. Svo fór hún til hans og sagði "fyrirgefðu en einni stelpunni hérna langar svo að þú skrifir á þessa servíettu fyrir sig". Hann tók vel í það og skrifaði "**** mín, takk takk, ég er glaður. Halli" Hann var sem sagt voða glaður að vera beðinn um eiginhandaráritun. Bara krúttlegt sko. En þar sem hann setti mitt nafn á servíettuna gat ég náttlega ekki farið að gefa S. hana svo ég setti hana bara í plast og hengdi upp á vegg hjá mér:)
Hinn frægi maðurinn sem kom þennan dag var svo Helgi Björnsson söngvari. En mig langaði ekkert í hans áritun.
Annars hefur allt verið nokkuð rólegt á þessum vígstöðvum. Ég er að tala við mjög skemmtilegan gaur á msn þessa dagana sem ég kynntist á einkamál. Hann virkar mjög fínn og honum þykir ég alveg gasalega fyndinn. Sá á eftir að verða fyrir vonbrigðum... ha ha ha!!!
Af einhverjum ástæðum tölum við mikið um kindur og hann er meira að segja búinn að bjóðast til þess að gefa mér eina slíka. Ég tók vel í það og núna þarf ég bara að reyna að sannfæra pabba um að það sé víst kúl að hafa rollu í stofunni, það ætti að lækka hitunarkostnað og svo getum við mamma prjónað og svoleiðis úr ullinni, ég er nú svo mikil prjónakona!!! Kannski ætlum við að hittast einhvern tímann en ég ætla samt ekki að stinga upp á því að fyrra bragði. Ég er ekki í skapi til þess. Við Hr. x tölum saman á msn þessa dagana og svoleiðis en ekkert meira en það. Ég ætla líka að gefa það bara upp á bátinn, ég veit að það verður ekkert meira úr því. En svona eru örlögin, Urður, Verðandi og Skuld eru búnar að ákvarða einhvern sérstakan fyrir mig og því verður ekki breytt...
En að öðru. Í gær fór ég í Kringluna og keypti mér... dadadaaaaaa, nýjan GSM síma. Hann er svoooooooooooo flottur og tæknilegur og ég kann ekkert á hann. Strákurinn í búðinni á svona síma sjálfur og sagði að hann væri mjög góður. Strákurinn í búðinni ætti kannski bara að taka mig í símakennslu því mér þótti alveg nógu flókið að læra að skrifa sms á þetta tól. Hann var nú doldið krúttlegur og á ammæli einu degi á undan mér. Hann sagði mér það sko þegar hann var að skoða visa kortið mitt:) Stelpurnar sögðu að ég hefði daðrað við hann en það er ekkert satt. Hi hi hi...
Þegar ég var búin að kaupa símann fór ég að keyra stelpurnar. Ég keyrði Önnu heim og Guðnýju í skólann, eða það var allavega ætlunin. En þegar við Guðný vorum á Miklubrautinni kom vond kona og KEYRÐI aftan á nýja bílinn hans pabba. Það var ekki gaman. Ég fékk smá hnykk á hálsinn og er búin að vera að drepast í hálsinum og höfðinu síðan. Bíllinn skemmtist ekki mikið en það verður samt dýrt að laga hann. Sem betur fer var ég í 100% rétti.
Jæja, ég hef ekkert meira að segja núna og þetta hefur ekki verið neitt gífurlega skemmtilegt blogg. En hei, líf mitt er ekki alltaf skemmtiganga!!! Bæjó í bili og heyrumst alleubba...
Ungfrú Hávaðaseggur :) ¶ 12:24 AM