------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ýmislegt skrýtid i kýrhausnum
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
laugardagur, september 13, 2003
  IT´S RAINING, IT´S PORING!!!

Já, í kvöld er sko heldur betur rigning. Það er dimmt og drungalegt úti og það sem enn verra er, vinur minn er með partý og þar er fullt af fólki sem ég þekki og allir að skemmta sér. "Af hverju finnst henni það slæmt???" spyrja kannski sumir. Jú sjáiði til, ég er nebbnilega veik og má ekki reka litlu tá út fyrir dyrnar (þetta með tána var bara fyrir S. vinkonu, sem, eins og ég, er með hroðalegustu tá-fóbíu allra tíma).
Núna rétt í þessu var ég að tala við einhvern fullan vin vinar míns á msn. Mér finnst mjög ósanngjarnt að aðrir megi skemmta sér þegar ég kemst ekki. Það á náttlega að aflýsa hlutunum þegar svoleiðis stendur á.
Allir sem eru sammála rétti upp hönd!!!

Annars er þetta kvöld búið að vera mjög notalegt. Mamma eldaði alveg rosalega góðan mat með austurlensku ívafi. Við drukkum hvítvín (ég er loksins orðin fullorðin...) með matnum og stemmarinn mjög notalegur. Svo kom hin ógurlega systir mín í hjemsókn og var bara ekkert ógurleg. Það var gaman. Við horfðum saman á t.v. hele familien, á frábæra danska mynd frá árinu 1999. Hún er sko gerð eftir bók sem við mæðgurnar höfum alltaf elskað og við systurnar eigum sitthvort eintakið af henni. Við kunnum hana utan að. Á íslensku heitir hún "Ást við fyrsta hikk" og hún er hrein og klár SNILLD!!! Mamma kellingin þekkir sitt heimafólk og var þess vegna búin að kaupa ÓGISSLEGA mikið nammi og við sátum hér öll fjögur og gúffuðum í okkur alls konar drullumsulli. Þetta var mjög gaman, enda langt síðan við höfum átt svona stund saman. Maður systur minnar (ekki eiginmaður, þau lifa í synd enn sem komið er...) er sko í réttum einhvers staðar og ekki vildum við nú hafa grasekkjuna eina heima í þessu veðri.

Í gær fór ég í vinnuna en var send fyrr heim vegna veikinda. Sú sem var yfir í gærkv. var með samviskubit yfir að hafa mig þarna því ég var með svo ljótan hósta og enginn vildi tala við mig til að smitast ekki :( Það er sko ekkert gaman þegar fólk vill ekki tala við mann. En ég er hvort sem er svo rám að ég get ekki talað mikið (foreldrum mínum og forráðamönnum til mikillar ánægju).
ÚFF, ég hef ekkert að skrifa um. Þetta með Hr. X er eiginlega dottið út úr hausnum á mér. Ég hreinlega nenni ekki að spá í það lengur. Það er enginn þess virði að maður sé að gera sig óhamingjusaman yfir honum, það er það sem ég hef ákveðið :)
Annars fór ég inn á einkamál.is áðan og var að skoða póstinn minn. Ég var að lesa bréf sem ég var ekki búin að svara og einn gaurinn sagði í sínu bréfi að "ýmislegt væri skrýtið í kýrhausnum" (man ekki samhengið enda skiptir það engu máli). Ég er búin að ákveða að þar sem hann skrifaði þetta OG þetta er heitið á blogginu mínu, þá hljóti hann að vera áhugaverður og þess virði að tjatta aðeins við, því eins og flestir vita (og þið sem ekki vissuð það fyrir vitið það núna) þá trúir Ungfrúin ekki á tilviljanir :) Þetta hlýtur því að vera merki um eitthvað, það segir sig nú bara sjálft.

Jæja, nú ætla ég að hætta því ég hef ekki frá fleiru að segja í þetta sinnið. Ég ætla í vinnuna á morgun, hvað svo sem raular og tautar og ef ég treysti mér til getur vel verið að ég skelli mér á ball eftir vinnu. En núna ætla ég að halda áfram að hlusta á regnið og kannski taka nokkra tölvuleiki við hann H. vin minn.

Bless og takk, ekkert snakk. Ungfrúin!!!


 

Segðu þína skoðun... Fjöldi skoðana: